Skólinn fer að byrjaTinna Ósk Auðunsdóttir

Skólinn byrjar á morgunn.  Í gær þurfti ég að fara og láta breyta stundatöflunni minni.  Ég þurfti að taka út tvo áfanga sem ég get ekki verið í vegna Tenerife ferðar fjölskyldunnar.  Ég bætti tveimur áföngum inn í staðinn og er því í 16 einingum.  Ég get tekið einn áfanga í fjarnámi þá verð ég í 18 einingum.  Spurning hvað ég geri, en ég nenni ekki að vera allt of lengi að þessu.  Samt málið er að ég er búin með stúdentinn þannig einungis sérhæfðir áfangar brautarinnar eru í boði og eru þeir ekki alltaf kenndir, sumir á vor og aðrir á haustönn.  Þannig ég verð svona að velja það sem er í boði hverju sinni.  Ég er reyndar bara kl:8:10 á morgnanna á mánudögum og þriðjudögum en byrja kl:10:15 á miðvikudögum og fimmtudögum og svo kl:9:05 á föstudögum.  Ég er líka alltaf búinn 14:20 þannig ég hef alveg tíma til að sækja Anítu sem er fínt.  Svo sótti ég um bílastæði við skólann en það kostar víst 8000 kr.  Það er verið að byggja við skólann og eru einungis 100 bílastæði í boði.  Ég sendi inn umsókn og ástæður þess að ég þyrfti bílastæði.  Krossa fingur að ég fái blessaða bílastæðið.  Þessa önn þarf ég einungis að kaupa tvær - þrjár bækur annað er afhent af kennara í hefti.  Svo getum við lagt í stæði við Laugardalshöll en ég nenni ekki að leggja þar.

Aníta byrjaði aftur hjá dagmömmu á mánudaginn og varð bara ánægð að byrja aftur og leika við krakkana.  Hún er orðin svo mikill prakkari.  Hún stríðir víst mikið krökkunum og þau horfa eftir henni þegar hún fer heim.  Litli stríðnispúkinn okkar.  Dagmömmunni fannst Aníta vera búin að stækka og þroskast yfir hátíðarnar.  Hún hefur tekið einhvern vaxtakipp um jólin og er mun þroskaðri í andlitinu.  Sumir sem sjá Anítu í fyrsta skipti segja hana vera 2 ára, hún sé svo þroskuð.  Hún er farin að segja búba = súpa, dida = sitja, dadth = takk

Tenerife flugið er alltaf að breytast.  Núna eigum við að lenda kl:05:00 að nóttu þegar við komum heim.  Vona að það gangi vel, sem og flugið út.  Við þurfum líklegast að millilenda í London á leið út, spurning hvað Aníta segir við því.  Vona bara að hún geti sofið eitthvað á leiðinni.  Hún á eflaust eftir að vera hrikalega forvitin og pirruð út af svefnleysi.  Það var í lagi að fara í þessa Tenerife ferð hvað skólann varðar.  Ég verð hins vegar á fullu að skila verkefnum og svoleiðis.  Fartalvan fer með mér út, svo ég geti skilað af mér verkefnum og svona.  Ætli maður taki ekki eitthvað af skólalesefni með sér í handfarangur til að stytta manni stundir. 

Svo hringdum við til að tékka hvernig gengi með leikskólapláss fyrir Anítu.  Hún kemst ekki inn fyrr en næsta vor.  Þetta fer víst eftir kennitölu og hversu margir eru á undan henni í röðinni.  Fannar lét í sér heyra í gær.  Fannst skrýtið að ekki kæmust fleiri börn inn þegar leikskólarnir eru að fyllast af fólki.  Hún er þó hjá dagmömmu og með krökkum, en hún er að verða eins og hálfs árs í næsta mánuði.  Þau sögðu hún kæmist inn tveggja ára, en það er samt ekki alveg gilt.  Því það eru jú krakkar á undan henni í röðinni sem eiga afmæli fyrr og svona kjaftæði.  Svo ef eldra barn en Aníta flytur í bakkana þá fer það undan henni á leikskóla af því það er eldra. 

Aðfangadagur liðinnTinna Ósk Auðunsdóttir

Nú er aðfangadagur liðinn með sínum hefðum og kræsingum.   Vonandi hafa allir átt gleðileg jól og getað verið með sínum nánustu.  Við fórum austur á Þorláksmessu og komum heim í gær.   Við fórum beint í veislu í gærdag þegar við komum í bæinn.  Amma og afi hans Fannars áttu 50 ára brúðkaupsafmæli og svo átti dóttir þeirra og maður hennar líka sama brúðkaupsdag.  Þannig það var mikið af fólki, en þessi veisla var haldin í Skútunni í Hafnarfirði.  Síðan fórum við heim og tókum upp úr töskum og gengum frá gjöfum og dóti. 
Þann 27. des var bekkjarhittingur hjá gamla bekknum mínum í Grunnskóla.  Það var voða gaman að hitta alla aftur.  Skrýtið hvað sumir hafa breyst á 10 árum en aðrir ekki neitt.  Við borðuðum saman í Árhúsum og skelltum okkur á ball í Kanslaranum.  Fannar kom í Kanslarann og hitti okkur þar.  Við fórum heim úm 3 leytið því við þurftum að vakna snemma morguninn eftir.  Það kom í ljós að fleiri börn myndu bætast í hópinn úr bekknum á næsta ári og svo ein gifting.  Þetta gengur bara vel hjá okkur.

Nú er u.þ.b. mánuður í Tenerife.  Ég get ekki beðið eftir komast frá krepputali og slaka aðeins á.  Ég býst þó fastlega við að þetta krepputal sé allstaðar í heiminum ekki bara á Íslandi.  Við áttum að fljúga með spænsku leiguflugfélagi Futura en það er hætt við það.  Núna fljúgum við með Iceland Express.  Mér er nú voða létt við það, þessar spænsku vélar eru svo misjafnar.  Málið er samt að flugtíminn okkar verður lengri og við þurfum líklega að millilenda í London.  Þá lendum við á Tenerife tveimur tímum seinna en áætlað var, en við förum í loftið hálf 4...og við munum lenda um 10 úti.  Ég vona að Aníta verði bara góð og svona.  Samt með smá áhyggjur út af því ef við þurfum að millilenda og svona. 

Svo um áramótin verðum við heima hjá mömmu og pabba.  Við munum líklega borða með þeim og horfa á áramótaskaupið en síðan er planið að renna í bæinn og hitta vinina.  Margir af vinum okkar sem eru í námi erlendis og eru hérna núna og við vildum nýta tækifærið.  Þetta fer auðvitað eftir veðri og vindum.  Aníta verður bara eftir hjá mömmu og pabba og þeim finnst það nú ekki leiðinlegt. 

Aníta er farin að dansa við alla tónlist.  Henni finnst svo gaman að dansa og hefur sinn eigin stíl litla konan okkar.  Það er svo gaman að fylgjast með henni.  Á öðrum degi jóla fór Aníta að sofa um 8 leytið og vaknaði svo aftur um 10 leytið og var svona hress.  Hún fór upp á eldhúsborð og dansaði þar, þvílíkt spræk.  Munnurinn á henni er líka fullur af tönnum, það vantar bara nokkrar þannig að allar tennurnar séu komnar.

Jólin nálgastTinna Ósk Auðunsdóttir

Það er hrikalega stutt til jóla núna.  Aníta greyið hefur verið með mikinn hósta og mikið slím og kvefrennsli.  Hún hefur tvisvar sinnum fengið eyrnabólgu og hita með.  Við höfðum nokkrum sinnum farið með hana til læknis en alltaf bara fengið sýklyfjamixtúru fyrir hana.  Núna er hún orðin aftur með slím og hósta, þannig við ákváðum að fara með hana til læknis fyrir jól.  Við áttum tíma í kvöld kl:21:15 í hjá barnalækni í Domus og Medica.  Þar kom í ljós að Aníta er með pínu astmaeinkenni.  Hún fékk því berkjuvíkkandi astmapúst sem heitir Ventolin.  Hún á að fá pústið 2 - 4 á dag í tvær vikur og sjá til hvernig hún verður eftir þennan hálfa mánuð. Þessi astmaeinkenni eru reyndar væg, þannig þetta er ekki eins og alvöru astmi en hún fékk púst við því.  Þessi einkenni komu með samblandi af öllum þeim sýkingum og veirum sem hún hefur fengið.   Svo er líka annað að það er ennþá vatn í eyrunum á henni.  Þannig í Janúar þurfum við að panta tíma hjá Háls, nef og eyrnalækni til skoða hana.  Það er nefnilega spurning hvort hún þurfi rör í eyrun, og þá þarf að svæfa litla engilinn okkar.  Vil bara gera allt til að henni líði betur  Hún ber sig alltaf vel og alltaf stutt í húmorinn hjá Anítu.  Í dag er Aníta 1 árs og 4 mánuða eða 16 mánuða gömul. 

Við förum austur á morgunn, til mömmu og pabba og verðum þar um jólin.  Við verðum þar fram að 28. des.  Þá brunum við beint í bæinn í kaffiboð afmælisboð hjá ömmu og afa Fannars.  Það verður haldið í Skútunni í Hafnarfirði.  Síðan erum við boðin í mat hjá systur Fannars þann 29. des þannig það er nóg að gera. 

Segi bara gleðileg jól

Alveg að koma jólTinna Ósk Auðunsdóttir

Nú styttist allverulega í jólin.  Það eru einungis 5 dagar þangað til á morgunn.  Á morgunn er seinasti dagurinn hjá Anítu hjá dagmömmunni fyrir jól.  Hún fer aftur þann 5. janúar.  Þegar ég sótti Anítu fékk hún jólapakka frá dagmömmunum, semsagt allir krakkarnir fengu einn pakka.  Hún var þvílíkt ánægð með það.  Einnig skreytti ég litla jólatréð okkar sem er bara 90cm.  Hekludótið hennar ömmu Tótu var sett á tréð og fleira dót sem við eigum.  Þetta er nú ósköp ræfislegt að sjá þetta svona, en við bætum úr því á næsta ári og fáum okkur stærra tré.  Ég hélt að Aníta myndi taka allt skrautið af trénu jafnóðum og ég setti það á, en hún hafði engan áhuga á því, tók alltaf sveig framhjá því.  Svo kom tengdamamma í heimsókn og kom með jólagjafirnar.  Hún kom líka með syngjandi og dansandi jólasvein en Aníta var ekki hrifin af honum.  Hún fór bara að gráta og vildi sitja hjá mömmu sinni.

Svo er aðeins einn dagur eftir í sveinsprófinu hjá Fannari.  Við vonum auðvitað að hann nái því.  Það var litapróf í dag, þ.e. að blanda saman litum til að fá einhvern ákveðinn lit.  Það var mikið stress á öllum, og mikið stress í mínum þegar hann kom heim.  Svo fær hann að vita á laugardag kl: 13:00 hvort hann hafi náð eða ekki.  Prófsýning er síðan frá kl:16:00 - 17:00 sama dag.  Þá get ég fengið að skoða það heila klabbið.  Hann fékk sumsé stelpuherbergi (barnaherbergi) þannig það verður spennandi að sjá útkomuna. 

Við verðum fyrir austan um jólin hjá mömmu og pabba eins og alltaf.  Getur verið við færum austur 22.desember en við sjáum bara til með það.  Það spáir bara rauðum jólum, það er ágætt þá kemst maður örugglega yfir heiðina.  Á morgunn förum við Aníta í jólaklippingu til Maríu Unu frænku.  Það verður gaman að kíkja á hana á nýja staðnum.  Þannig ég sæki Anítu eitthvað fyrr á morgunn út af því en við eigum að mæta kl: 16:00 en Aníta er alltaf hjá dagmömmu til 16:00.  Þannig seinasti dagurinn verður eitthvað í styttri kantinum.

Náði öllum prófunum :)Tinna Ósk Auðunsdóttir

Jæja þá hef ég fengið út úr öllum prófunum og ég barasta náði öllu Laughing ég er sko alveg hrikalega sátt við það.  Níu einingar komnar í höfn.  Það verður gott að eiga yndisleg jól núna þegar mesta stressið er farið.  Fannar fékk líka út úr einu prófi sem hann tók.  Það var semsagt einn áfangi kenndur aðeins einn dag, svona eiginleg hraðkennsla.  Hann fékk að vita út úr því í gær.  Viti menn hann fékk 10 í einkunn.  Ég er ekkert smá stolt af honum Smile þannig spurning hvor sé bókanörd ég eða hann!  Svo á sunnudagskvöldinu þurfti hann að sækja vinnubíl á Keflavíkurflugvöll.  Þetta var vinnubíll sem útlendingarnir höfðu verið með en þeir létu þá keyra hann út á flugvöll á securitas svæði en að láta Fannar fá bílinn beint.  Þannig að tengdamamma þurfti að skutla Fannari suður á völl að sækja bílinn....  Þvílíkt vesen.  Svo byrjaði sveinsprófið í gær.  Fannar fékk úthlutað stelpuherbergi.  Hann á semsagt að mála stelpuherbergi og gera einhverja skreytingu á vegginn.  Einnig á hann að mála svefnherbergishurð í fullri stærð í tveimur litum.  Það er mikið mál að finna hvaða litir passa saman og ekki að ofgera herberginu.  Einnig var hann að teikna upp einhverjar fígúrur til að setja á veggina.  Það verður spennandi að sjá lokaútkomuna. 

Aníta Ósk var hrikalega pirruð í gær.  Það eru fleiri tennur að bætast í hópinn.  Hún var erfið að sofna og vildi helst komast fram til að vesenast og drasla út.  Á endanum sofnaði hún eftir mikinn grátur og átök.  Gaf henni bara stíl og hélt hún myndi róast við það.  Nei, sú litla varð bara betri og var farin að hæja okkur, syngja og telja...1,2,3.  Svo átti hún líka erfitt með að vakna í morgunn, þessi elska.  Í gær ætlaði ég að fara með jólakortin niður í Mjódd í pósthúsið þar.  Ég fann ekkert stæði laust, allt upptekið.  Þannig ég ákvað að sækja Anítu bara snemma og kíkja í Smáralindina með kortin.  Aníta var nú ekkert ánægð með að fara þramma með mömmu sinni föst í kerru í búðum.  Reyndar fór ég bara með kortin, kíkti í eina búð og keypti jeina ólagjöf fyrir Fannar.  Ég ætlaði að gera miklu meira, en sú stutta nennti ekki meiru. 

Svo okkur til mikillar ánægju er uppþvottavélin okkar biluð aftur.  Hún fer ekki í gang sama hvað við reynum.  Núna er hún full af vatni sem síast ekki úr vegna þess hún kemst ekki í gang.  Þannig nú förum við aftur í tímann og vöskum upp.  Það væri samt fínt að hún kæmist í lag fyrir jól.  Svo þann 18. kemur Gunnar Örn vinur okkar heim.  Hann er í flugnámi í Bretlandi.  Það verður gaman að sjá hann.  Svo fer tengdamamma út þann 19. og verður úti á Kanarí yfir jól og áramót. 

JólagjafainnkaupTinna Ósk Auðunsdóttir

Þá er búið að kaupa fleiri jólagjafir og pakka inn fleiri gjöfum.  Við fórum í Kringluna í gær um hálf 4 og það var allt crazy.  Það var eins og kominn væri 22. desember og allir fyrir öllum.  Ég segi nú bara kreppa hvað.  Það voru víst margir sem fóru í Tiger og keyptu jólagjafir.  Við þrömmuðum þarna og skoðuðum og svona.  Ég var að leita að einhverju outfiti þar sem það verður líklega reunion hjá gamla bekknum mínum frá grunnskóla.  Ég náði að kaupa mér eitt stykki kjól.  Það verður reyndar líka skírn hjá systur hans Fannars en reyndar ekki fyrr en á næsta ári, en það er hægt að nota hann þá líka.  Á meðan ég mátaði talaði Aníta stanslaust við gínuna sem stóð þarna.  Henni fannst asnaslegt hún svaraði henni ekki.  Pabbi hennar hristi gínuna til að sýna henni að þetta væri bara dúkka en allt kom fyrir ekki og Aníta hélt áfram að hæja blessuðu gínuna. 

Í dag fórum við og kíktum á litla frænda.  Hann er rosalega sætur litli prinsinn.  Aníta hafði hins vegar ekki mikinn áhuga á litla frænda sínum en lék sér við eldri frænda sinn.  Hún sýndi alla taktana sína sem hún kann....og meira en það.  Þegar við fórum hefur örugglega þurft að ryksuga vel og lengi.  Mamma og pabbi komu líka í heimsókn í dag.  Við borðuðum saman í hádeginu.  Þau fóru líka til afa Gunnars.  Síðan fóru þau í eitthvað jólagjafamakk. 

Þessi helgi var barasta í lagi, og uppsöfnuð þreyta farin að gera vart við sig.  Ég ætlaði mér kannski að gera nokkrar sörur ef ég nennti í kvöld.  Spurning hvað ég nenni...Svo er sveinsprófið hjá Fannari á morgunn.  Vonum að það gangi sem allra best. 

Verið dugleg að kvitta

Komin i jólafríTinna Ósk Auðunsdóttir

Núna er ég komin í jólafrí...jibbí Wink  Ég fór í síðasta prófið mitt í gær.  Ég var orðin frekar þreytt í restina af öllum þessum lærdómi.  Það var farið að rjúka úr eyrunum á mér.  Vonandi gengur þetta allt upp hjá mér.  Ég tók þrjá áfanga á þessari önn í fjarnámi.  Það má ekki taka meira í fjarnámi nema maður biðji um það sérstaklega.  Það var ágætt plús heimili og fjölskyldan.  Það var reynt að púsla þessu eitthvað saman, en Fannar var líka í kvöldsskóla á þriðjudögum og fimmtudögum þanig þetta var mikið púslerí. 

Í gærkvöldi ákvað ég að byrja á fyrstu smákökusortinni þessi jólin.  Sú sem varð fyrir valinu var súkkulaðibitakökurnar með heslihnetum sem mamma gerði alltaf þegar ég var yngri...mmmm þær eru svo góðar.  Það kom góð lykt í húsið í gær við baktsturinn.  Svo í dag ætlaði ég kannski að gera lakkrísbitakökur, en þær eru í miklu uppáhaldi hér á heimilinu.  Ef ég baka þær klárast þær mjög fljótlega.  Svo ætla ég líka að gera sörur fyrir jólin og piparkökur og skreyta þær.  Þannig það er alveg nóg að snúast í bakstri. 

Svo tók ég líka til á heimilinu og ryksugaði.  Það hefur ekki verið mikið um það seinustu daga, þar sem ég hef verið í prófum.  Við höfum þó ekki búið í svínastíu.  Það er nú ekki það slæmt hérna.  Ég var ánægð þegar ég var búin að þrífa og baka smákökur.  Þá ætlaði ég að opna jólaöl og fá mér smákökur og hygge mig, en Aníta vaknaði og fór ekki að sofa fyrr en ég fór inn með henni.  Þannig jólaöl og smákökur fyrir mig bíður ennþá eitthvað lengur.

Kominn tími á bloggfærsluTinna Ósk Auðunsdóttir

Hvað segið þið um eitt stykki bloggfærslu.  Það hefur ekki beint verið mikið um það seinustu vikur og mánuði.  Það hefur margt gerst þessa síðustu daga.  Eitt kvöldið fyrr í mánuðinum var haldið frænku/mágkonu hittingur heima hjá Ingu Hrönn.  Þetta var semsagt föður megin.  Það var rosalega gaman að hittast þarna og spjalla fram á nótt.  Svo fórum við með Anítu í morgunn til læknis.  Hún hefur verið með eyrnabólgu í annað sinn núna.  Við fórum með hana á Læknavaktina fyrir viku síðan og vorum að tékka á eyrunum hennar núna.  Eyrun eru að ná sér eftir bólguna en hún er ennþá með smá niðri í lungunum.  Hún má því ekki fara neitt út að leika.  Hún er samt hjá dagmömmunni.  Svo er eitt rosalega fyndið að dagmamman hennar Anítu þekkir mömmu.  Semsagt dagmömmurnar eru tvær saman, en dagmamman heitir Stella sem þekkir mömmu.  Hún var að vinna fyrir i. guðmundsson fyrirtæki sem Mosfell verslaði við.  Henni finnst rosalega gaman að hún skuli vera að passa barnabarnið hennar mömmu.  Lítill heimur sem við búum í.  Aníta hefur farið ófá skiptin núna austur til mömmu og pabba.  Þau eru dugleg að hafa hana eina hjá sér.  Henni finnst gott að vera í dekri hjá afa sínum og ömmu.  Þegar hún lítur út um svalardyrnar segir hún alltaf ,,ava, vava" afi og amma Smile


Svo eru lokaprófin hjá mér í fullum gangi.  Var í einu 1. des, svo einu í gær og síðasta á morgunn.  Þá er ég komin í jólafrí.  Þá get ég farið að kaupa jólagjafirnar sem eru eftir og baka þær sortir af smákökum sem ég ætla mér.  Jólakortin er ég búin að panta og þau komin í hús.  Ég pantaði þau á mömmur.is og þau láta prenta þau út hjá Hans Petersen.  Þetta var ekki dýrt skal ég segja ykkur.  Ekki á miðað við í fyrra, sérmyndatöku af barninu og myndaalbúm með.  Búin að setja þau í umslög og skrifa á þau.  Jólakortið er rosalega flott en þið verðið að bíða fram að jólum.   


Fannar fer í sveinsprófið í málaranum í næstu viku.  Það tekur semsagt alla vikuna.  Hann er í 42 einingum þessa önn.  Mikið að gera.  Svo er útskrift 19. des, en þá er hann reyndar ennþá í sveinsprófinu sjálfu.  Hann fær pappíranna líklega bara senda heim.  Hann nennir ekki að útskrifast með nýstúdentum, hann er búinn að útskrifast einu sinni sem stúdent.  Hann er reyndar alltaf búinn kl: 17:00 á daginn þannig við getum kíkt á nokkrar jólagjafir á kvöldin. 


Senn fer að líða að Tenerife ferð.  Hún er áætluð 27. janúar - 10. febrúar.  Það verður gott að komast í smá stund frá krepputali og slappa af og njóta þess að vera til.  Ætli við Fannar höldum ekki upp á útskriftina hans þar.  Vona bara að ferðaskrifstofan sé ekki komin á hausinn.  Þessi ferð var ákveðin og borguð fyrir kreppu.  Svo ætla ég að fara í dagsskóla eftir áramót, búin að fá greiðsluseðil um inngöngu.  Er samt pínu stressuð út af Tenerife ferðinni, en ég vona þau skilji þetta.  Ég segi kennurunum þetta strax og þá ætti það ekki að vera neitt mál.  Þetta eru nú samt tvær vikur en ég vona það besta.  Annars breyti ég þá aftur í fjarnám ef það gengur ekki.  Svo get ég ekki verið lengi í skólanum út af Anítu.  Ég verð að sækja hana til dagmömmu/leikskóla kl: 16:00 á daginn. 

Í gærkvöldi eignaðist systir Fannars 14 marka strák.  Við erum spennt að fá að sjá litla frænda.  Svo er Tóta frænka líka komin á skrið.  Þannig það er allt á fullu í barnamálum hér.  Ein tekur við af annarri. 

TékkeríTinna Ósk Auðunsdóttir

Já, þessi bloggfærsla er aðallega til að tékka á því hvort einverjir séu ennþá að fylgjast með mér hér.   Allavega hefur mikið gerst undanfarið. 

Aníta er byrjuð hjá dagmömmu en það eru tvær dagmömmur sem eru saman.  Vinkonur og eru með 10 börn.  Það er rosalega gaman að sjá Anítu leika við alla krakkana.  Hún er reyndar bara í aðlögun ennþá.  Þetta er svo gott fyrir hana að vera með krökkum. 

Aníta er orðin 1 árs og búin að halda upp á tvær afmælisveislur eina fyrir móðurfjölskyldu og aðra fyrir föðurfjölskyldu.  Svo hafa veikindi komist á heimilið. Fannar byrjaði með flensu og sem því fylgir.  Svo bættist ég í hópinn.  Síðan kom Aníta.  Við fórum austur um seinustu helgi til mömmu og pabba.  Ætluðum að eiga saman góða helgi, en Aníta varð veik á föstudagskvöldinu og nóttinni.  Hún vaknaði um kvöldið og svo aftur kl: 4 um nóttina.  Á laugardeginum gubbar hún, síðan fær hún svaka hita, upp í 40 stig.  Við gefum henni stíla og nóg að drekka, en hún skánar ekkert.  Á sunnudeginum gubbar hún aftur og er enn með 40 stiga hita.  Við förum því til læknis og þá kemur í ljós að litla stelpan okkar er með eyrnabólgu og sreftakokkasýkingu og er að deyja úr kvefi þessi elska.  Við Aníta verðum eftir hjá mömmu og pabba fyrir austan en Fannar fer til rvk út af vinnunni.  Pabbi var reyndar í veiði og ekki heima.  Við tekur þvílíkt átakakvöld fyrir okkur mömmu og Anítu.  Hún grét stanslaust allt kvöldið til að verða 2 um nóttina.  Alveg gjörsamlega búin á því.  Það var erfitt að sjá hana svona veika og geta ekkert gert.  Á mánudeginum nær Fannar í okkur en ferðin í bæinn var erfið fyrir Anítu.  Hún grét nánast alla leiðina.  Það var samt gott að komast heim. 

Svo erum við Fannar byrjuð í skólanum.  Mér gengur svona ágætlega, en þetta er bara mikill lestur heima.  Fannar hélt hann útskrifaðist næsta vor, en nær að klára núna um jólin.  Þá verður hann kominn með sveinspróf í málaranum.  Hann er með fyrsta hópnum sem nær þessu á jólaönn.  Ég er svo stolt af honum, svo er það bara meistarinn í málaranum.  Þegar Fannar verður búinn með sveinsprófið förum við litla fjölskyldan að leita okkur að varanlegra húsnæði, stærra og svona.  Við vorum búin að taka ákvörðun að þegar hann væri búinn að læra myndum við flytja eitthvert annað.  Það verður bara spennandi hvernig það fer.

Allt að skeTinna Ósk Auðunsdóttir

Um seinustu helgi fórum við austur til mömmu og pabba.  Þar var landbúnaðarsýning og töðugjaldahátíð.  Einnig átti Aníta Ósk afmæli og hédum við afmælisveislu fyrir Anítu þar.  Það var nefnilega mikið af fjölskyldu minni þarna fyrir austan og mér fannst gaman að geta haft afmælið þá.  Frábært að hitta alla Brosandi  Svo átti ég líka afmæli á sunnudeginum, þannig við Aníta héldum saman veislu.

Svo á sunnudag verðum við með afmælisveislu fyrir föðurfjölskylduna.  Það verður örugglega svaka stuð.  Ég var einmitt að panta afmælistertu, svona súkkulaðitertu með kremi á milli og svo bangsímon mynd ofan á og nafnið hennar líka.  Hún verður vonandi flott, hlakka til að sjá hana. 

Fannar er á fullu að gera herbergið hennar Anítu klárt.  Hann málar bleikt neðst svona blæ af bleiku svo kemur hvítt og svo blátt.  Svo tók hann plastpoka og setti í bláa litinn svona líkt og þetta sé himinn.  Svo skar hann út lítil ský úr pappa.  Málaði síðan innan í þau hvítt, svo þegar pappinn var tekinn frá komu hvít ský í ljós.  Borðar voru settir upp í gær og svo eiga fígúrur úr Bangsímon að koma upp á vegg.  Ný loftljós og svona.

Einnig erum við að fá okkur nýjan skáp fyrir sjónvarpstækin, því við ætlum að setja sjónvarpið upp á vegg.  Aníta kemst núna í sjónvarpið sem og tækin og því verðum við að fjarlægja það.  

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Tinna Ósk Auðunsdóttir
  • Kennitala: 240882-6049
  • Netfang: tinnamusic8@hotmail.com
  • Staður: Reykjavík
  • Heimilisfang: Kóngsbakki 2
  • Símanúmer: 5875955
  • Hjúskaparstaða: í sambúð
  • Um mig: Lyfjatæknanemi
  • Annað: Á litla sæta stelpu

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...