Nokkrir dagar í jólinTinna Ósk Auðunsdóttir
Það eru einungis nokkrir dagar í jólin, og eruði komin í jólaskap ? Ég er hins vegar ekki komin í neitt brjálæðislegt jólaskap. Veðrið hefur ekki hjálpað til undanfarna daga. Alltaf rok og rigning og maður heldur sig bara heima við vegna ofsaveðurs. Við fórum seinasta laugardag austur. Óli maður systur hans pabba varð sextugur og hélt smá veislu. Við létum okkur auðvitað ekki vanta. Aníta bræddi alla sem sáu hana, fólk gat ekki slitið sig frá henni. Hún er jú auðvitað lang fallegust. Við komum svo heim í gær, í svarta þoku á heiðinni og roki. Stundum fór nú hrollur um mína.Fannar fékk út úr prófunum í dag og hann náði öllu þessi elska
Svo er stefnan hjá okkur að fara austur á laugardaginn kemur. Við ætlum að taka labbitúr með vagninn og fara með jólakort í hús og svona. Kikja í einhverjar heimsóknir og annað slíkt. Pabbi ætlar að koma í bæinn og taka eitthvað fyrir okkur, því við verðum jú með mikið af dóti.,,.farangur + jólagjafir. Við ætlum reyndar að fara í smá brunch til Maríu tengdó áður en haldið er austur. Hjá tengdó ætlum við að hitta systkini hans Fannars og eiga með þeim góða stund...leyfa Anítu aðeins að vera með þeim, því við verðum jú fyrir austan og þau í rvk um jólin. Veit ekki alveg hvernig verður með á milli jóla og nýárs. Fannar þarf að vinna þessa tvo daga, en þó var það ekki skylda. Ég veit ekki hvort ég kem eða ekki. Það væri nú alveg gaman að hitta strákana eitthvað áður en þeir fara út.
Jólin nálgastTinna Ósk Auðunsdóttir
Jólin óðum nálgast...ég kemst í þvílíkt jólaskap yfir þessum snjó sem prýðir borgina þessa dagana. Við fengum jólamyndirnar af Anítu seinasta miðvikudag. Við ákváðum líka að panta jólakort hjá Ljósmyndaranum þannig þau verða til 12. des eða næsta miðvikudag. Þá get ég farið að skrifa og senda. Ég þarf að senda kort til Nýja Sjálands og Svíþjóðar, þannig ég vona þau komist í tæka tíð.Í dag fórum við með Anítu litlu í sína fyrstu sprautu. Við höfðum kviðið frekar mikið fyrir þessari fyrstu sprautu. Fyrst fór hún í venjulega skoðun og svona, og síðan til barnalæknisins í aðra skoðun og fékk svo sprautu í rassinn. Við vorum alveg viðbúin öllu, en Aníta litla kveinkaði sér nú ekkert yfir þessu lítilræði og lá kyrr eins og engill. Við vorum að vonum mjög stolt af litla englinum okkar að vera svona dugleg. Aníta var búin að stækka alveg helling og þyngjast, ég setti það inn á síðuna hennar....kíkið endilega þangað og svo muna að kvitta
Svo ætlum við okkur að fara austur á morgunn. Ég vona það allavega við getum það. Það getur verið að Aníta fengi hita og verði pirruð eftir þessa sprautu, svona seinni partinn í dag. Þannig við vonum bara það besta, annars verðum við bara heima. Sú stutta steinsofnaði um leið og við brunuðum heim frá lækninum...þannig ég vona að hún verði í lagi þessi elska.
Allt í gangiTinna Ósk Auðunsdóttir
Við fórum í piparkökubakstur hjá móðursystur hans Fannars uppí Grafarholti í morgunn, eða kl: 10:00. Ég hafði smá áhyggjur að hún Aníta gæti ekki vaknað svona snemma, en hún var vöknuð um sex leytið til þess að fá að drekka og sofnaði síðan aftur. Þannig varð því ekki neitt rosalega erfitt að vekja prinsessuna á bauninni. Þarna var öll móðurfjölskyldan hans Fannars saman komin. Aníta skar ekki út piparkökur að þessu sinni en kannski verður það á næsta ári. Í gærkvöldi skreyttum við síðan heimilið að innan og í dag að utan. Það er orðið svolítið jólalegt hjá okkur. Svo var okkur boðið í skírn á morgunn kl: 18:00 suður í Vogum hjá frænda hans Fannars, en við ætlum að sjá bara til hvort við komumst. Fengum að vita þetta í dag og það er mikil vinna framundan hjá Fannari t.d. á morgunn að laga e-ð tjón hjá fólki.
Svo urðu gleraugun mín alveg ónýt. Málið var að annað glerið datt alltaf út úr umgjörðinni. 1-2 mánuðum áður hafði ég farið til augnlæknis og keypt glæný gler fyrir morðfjár. Ég fór með gömlu gjörðina og lét laga hana, en fann mér aðra umgjörð sem verður til á mánudag eða þriðjudag. Þannig ég get notað gömlu gleraugun bara heima og svona.
Svo langar okkur austur næstu helgi, en svo er líka 60 afmæli hjá Óla manni systur hans pabba þann 15. des og við vitum ekki alveg hvað við gerum í því. Kannski förum við núna næstu helgi og kíkjum bara aðeins austur þarnæstu helgi. Mig langar bara að kíkja aðeins austur áður en við förum austur fyrir jólin, en við ætlum aðeins tímanlega austur fyrir þessi jól. Fannar ætlar að setja bakkskynjara á nýja bílinn og svona. Lokaprófin fara að byrja hjá Fannari þannig það er alveg nóg að gera hjá litlu fjölskyldunni í Breiðholti.
Allt og ekkertTinna Ósk Auðunsdóttir
Það gerist ekki mikið í bloggmálum hjá mér þessa dagana. Maður er á fullu að snúast um litlu dúlluna hana Anítu ÓskÉg pantaði jólamyndatöku fyrir hana í dag. Við fengum tíma þann 29. nóv kl:11:30 og vona ég að Aníta verði bara hress og kát í tökunum. Við erum kannski ekki alveg að flýta okkur með jólakortin, en við þurfum að senda eitt til Nýja Sjálands...þannig þetta þarf að fara gerast
Svo er okkur boðið í 2ja ára afmæli hjá Friðrik Gauta frænda á laugardaginn. Fannar verður reyndar því miður að vinna, en við Aníta ætlum að skella okkur í afmælið. Það verður gaman að hitta fjölskylduna aðeins.
Komiði öll blessuð og sæl!Tinna Ósk Auðunsdóttir
Jæja þá er litla fjölskyldan í Breiðholtinu komin á stærri og betri bíl. Við ákváðum að skipta um bíl, þegar við sáum að barnavagninn komst BARA fyrir í skottinu á Opel Östrunni okkar. Við vorum samt mjög ánægð með Östruna og vildum helst ekki skipta. Fannar hafði farið í skoðunarferð um daginn og sá nýja bodíið af steingráum VW Passat á geggjuðu tilboði, og féll fyrir honum. Við fórum með Opelinn okkar í söluskoðun í gær og fengum að prufukeyra kaggann. Við þurftum reyndar að taka Anítu með okkur, því það var enginn til að passa hana á meðan. Þannig við settum kerruna hennar Anítu í skottið og VÁ! það var þvílíkur munur. Rosalega mikið og gott pláss fyrir allt okkar hafurtaskÉg vissi alltaf við yrðum að fá okkur stærri bíl, en mig langaði helst ekki að skipta því mig langaði ekki að selja Opelinn minn. Þetta er bara til hins betra, því núna getum við tekið allan okkar farangur sjálf en ekki upp á aðra komin. Við ætlum að fá okkur bara bakkskynjara á bílinn þannig það verði betra og öruggara að keyra hann, því bíllinn er jú stærri en Astran. Það tekur mig nú einhvern tíma að æfa mig að keyra Passatinn. Ég segi nú samt, ef að María frænka getur keyrt Dodge Durango þá get ég keyrt VW Passat
Þó er allt fínt að frétta af henni Anítu litlu. Hún er byrjuð að hlæja smá, en henni finnst þetta eitthvað asnalegt hljóð sem kemur út úr henni. Þannig hún stækkar og dafnar áfram þessi elska. Svo um helgina ætlum við að fara með Fannars fjölskyldu upp í bústaðinn þeirra og baka smákökur og slappa af. Fannar ætlar að læra smá og svo verður kannski farið í göngutúr.
Er ekki komin tími að blogga!Tinna Ósk Auðunsdóttir
Eins og sést hefur á þessari bloggsíðu er ég ekki sú duglegasta í bransanum. Þegar ég er með síðuna fyrir Anítu líka. Ég hef verið eitthvað svo löt við að setjast niður og blogga. Þó er ég við tölvna á hverjum degi, þannig ég ætti nú að ráða við þetta
Annars er allt gott að frétta af litlu fjölskyldunni í Breiðholtinu. Aníta dafnar vel eins og hún hefur gert. Endilega bara kíkja fyrir þá sem vilja, alltaf gaman að fá gesti. Svo er þetta bara venjulega, Fannar í vinnunni og skólanum þannig allt hefur sinn vana gang.
Ji ég er að fara í klippingu á morgunn hjá Maríu Unu frænku...mig hlakkar dálítið til. Seinast þegar ég fór í klippingu var bara klippt einhvern veginn og svo þurfti ég að laga mig sjálf þegar heim var komið. Þannig ég þarf góða lagfæringu á þessu öllu saman. Mig langar svolítið að láta klippa það aðeins styttra svona að herðum og í einhverjum tjásum og látum....hvað finnst ykkur ?
Svo erum við að fara austur í sveitina á laugardaginn. Komast aðeins úr borginni í rólegheitin. Við förum reyndar þarnæstu helgi líka, en þá förum við með Fannars fjölskyldu upp í sumarbústaðinn þeirra rétt við Úthlíð og bökum smákökur eða bara sofum og slöppum af. Það verður skrýtið fyrir Anítu að komast í bústað...í umhverfi sem hún er ekki vön. Við ætlum líka að taka vagninn með ef við getum farið í göngutúr.
Svo í morgunn var einhver bévítans hálsbólga að plaga mig, og reyndar í alla nótt. Ég vil ekki verða veik, ég segi barasta nei. Við á leið austur tvær helgar og ég í mína langþráðu klippingu. Ég var með vondan hausverk í allan gærdag og alla nótt...þannig kannski er pestin búin að krækja í mig. Í dag verður bara reynt að sofa þetta úr sér svo maður verði hress á ný.
Fartalvan dáin!Tinna Ósk Auðunsdóttir
Já, litla sæta fartalvan mín dó bara. Það er búið að krukka í henni til að sjá hvað er að, en ekkert gerist. Í gær settu þeir svo allt nýtt í hana og Fannar fór og ætlaði að sækja hana. Þá var annar bragur á þessu. Það tók hana 10 mínútur að komast í gang, þannig að hún varð því áfram í viðgerð...eða við fáum nýja(sambærilega tölvu). Allavega ætla ég ekki að borga krónu fyrir þetta, því talvan er í ábyrgð og ekki orðin 1 árs gömul.Eftir þessa skírn þá er maður búin með kvótann sinn í kökuáti fram að jólum allavega. Við fengum afganga með okkur heim og það er búið að borða þetta nánast í hvern mat.
Jæja, meira er nú ekki að frétta! Aníta stækkar á hverjum degi og Fannar á fullu í vinnunni.
Hérna Linda nei ég fékk ekki e-mailið frá þér. Gsm númerið mitt er 866 6898 ef þú vilt bjalla í mig! netfangið mitt er tinnmusic8@hotmail.com
Skírn og fleiraTinna Ósk Auðunsdóttir
Þá er nafnið formlega komið á litlu skvísuna okkarSvo á sunnudeginum þá fórum við í 1 árs afmæli hjá Eddu Siv frænku. Það var líka gaman að kíkja í afmælið til hennar...hún var svo kát og skemmtileg
Í dag mánudag fórum við með litlu dömuna í vigtun og skoðun. Aníta Ósk mældist 57.7 cm og 5445 grömm. Litla músin okkar er að stækka og þyngjast all verulega þessa dagana. Ég sé hana nánast stækka í höndunum á mér. Aníta er 2ja mánaða í dag.
Kominn tími á smá blogg...Tinna Ósk Auðunsdóttir
Er ekki kominn tími til að blogga. Allavega er ég ekki orðin duglegasta manneskjan í þessum bransa. Reyndar er nú ekki mikið í fréttum. Fannar vinnur bara og vinnur og við Aníta erum heima. Um daginn keyptum við kerru fyrir bílstólinn og sem hún getur notað líka seinna. Þetta er frábært því núna get ég farið meira en ég gerði. Nú fer að líða að skírn og er allt á fullu í undirbúning fyrir það.Aníta Ósk stækkar með hverjum deginum sem líður. Finnst alltaf hún breytast á hverjum degi, alltaf nýtt barn. Talandi um börn þá er árið 2007 eitthvað frjósemis ár hjá gamla bekknum mínum úr grunnskóla. Því á árinu hafa fimm börn bæst í hópinn. Það er bara gaman af því, líka að það eru þrjú í ágúst
Haldiði að nýja fartölvan mín hafi hrunið um fyrir helgina. Mér finnst það frekar asnalegt þar sem þetta er varla eins árs gömul tölva. Vinur hans Fannars er kerfisfræðingur og er að vinna í því að reyna bjarga gögnunum okkar. Þannig eins og flestir sjá eru ekki komnar nýjar myndir inn á síðuna hjá Anítu. Ég er reyndar líka að bíða eftir skírninni þannig ég fái aðeins fleiri myndir í einu....og líka eftir tölvunni minni, vona bara þeir geti lagað hana
Mamma og pabbi koma heim í dag frá Amsterdam, og held þau komi með eitthvað fatakyns handa Anítu sætumús. Við þyrftum bara að fara kaupa stærri fatahirslu fyrir hana
Er þetta ekki gott í bili
p.s. endilega muna að kvitta á síðuna hjá Anítu Ósk, það er svo gaman að sjá hverjir eru að skoða.
Kominn októberTinna Ósk Auðunsdóttir
Er ekki komin tími á smá blogg... Ég er ekki neitt rosa dugleg að blogga þessa dagana. Svona er þetta víst þegar maður á barn, þá er allur tími hlaupinn frá manni. Við fórum með Anítu í vigtun og skoðun hjá barnalækni í gær, og hún kom alveg svaka flott út úr öllu. Hún er auðvitað lang flottust þessi skvísa. Svo ætlar Haddý frænka að koma og kíkja á okkur um helgina, það verður bara gaman.
Já, svo er komin október og mér finnst bara alveg að fara koma jól. Það verður svo gaman um jólin, þá verður Aníta orðin 4 mánaða gömul. Við verðum fyrir austan hjá mömmu og pabba og reikna með að pakkafjöldinn verði meiri en í fyrra. Nú verða jólin löng og góð þannig þetta verður fínt. Svo hlakkar maður bara til útileganna á næsta ári...þá verður Aníta svona 10 mánaða.
Samt er ekki mikið að frétta...Fannar vinnur bara, reyndar settu smá veikindi strik í reikninginn. Annars er ekki mikið að frétta af mér sjálfri annað, en að ég er bara heima með Anítu. Það getur samt orðið svo leiðinlegt að vera einn heima með hana, og komast ekkert út. Gæti alveg farið út með vagninn en samt ekki í svona mikilli rigningu eins og hefur verið undanfarið...þá er nú betra að vera inni og kannski bara undir sæng. Mig langar alveg að gera fullt af hlutum, en get það ekki...svo erum við líka bara með einn bíl og ég þekki engan hér í göngufæri. Mig langar líka orðið eitthvað svo hryllilega út, bara eina helgarferð til London eða eitthvað. Ég fór t.d. aldrei í neina útskriftarferð þannig mér finnst ég eiga þetta alveg skilið, líka þar sem ég varð 25 ára um daginn.
Komið gott í bili...þangað til næst
