Góðar einkunnir í dag ;)Tinna Ósk Auðunsdóttir

Já, ég get nú ekki kvartað yfir einkunum mínum í dag! Ég var fyrst í dag að vita úr verkefnum í Jarðfræði sem ég var löngu búin að skila og kennarinn eitthvað seinn að fara yfir og skila til baka.   En semsagt ég fékk 9.0 fyrir hvert verkefni, en verkefnin voru tvenn. Þ.e. umfjöllun um gróðurhúsaáhrifin og ósonlagið, hitt átti að fjalla um jarðvarma virkjanir.  Og ég tók auðvitað Hellisheiðarvirkjun, það lá svo beint við.  Þannig að nú hækkar meðaleinkunnin mín eitthvað, en hún var alveg ágæt fyrir Hlæjandi

Svo komu þau gömlu heim í dag frá Köben, og komu með nammi og svoleiðis....Machintosh fyrir jólin, ekkert er meira jólalegra í þessum snjó.  Í dag var fyrsti skóladagurinn eftir allt þetta læknastúss, en ég hef ekki farið í skólann alla vikuna, bara verið heima og slappað af.  Það var svo sem ágætt að fara aftur, þó svo að færðin hafi verið leiðinleg.  Svo á að bæta ennþá meira í þennan blessaða snjó.  Núna verður maður að vera með fullt af rúðupissi á bílnum annars getur þetta verið hættulegt.  Gott að vera á nagladekkjum líka.  Núna eru bara rúmar 2 vikur eftir af skólanum og maður orðin frekar stressaður yfir blessuðu prófunum.  En ég held ég geti sleppt við tvenn próf, ég er semsagt í þremur próflausum áföngum en ég held ég þurfi að taka eitt af þessum prófum sem lokapróf.   Það gerir manni kleift að læra því meira fyrir hin prófin.  Samt mest kvíði ég fyrir Ensku prófinu en ég er í Ensku 603 og ég er ekkert svaka spes í enskunni, en þessi áfangi eru bara enskar bókmenntir og hvernig orðin hafa orðið til í aldanna rás.  Semsagt frekar boring svona, en ég er að reyna að hafa þetta skemmtilegt.


Jæja, veit ekki hvað ég að kreista meira í bili....þangað til næst.


Bara geðveikir tónleikar :-)Tinna Ósk Auðunsdóttir

Já við Fannar fórum á Sykurmolatónleikana í gærkvöldi.  Þeir voru alveg hreint frábærir, og langt síðan við höfum farið á jafn góða tónleika.  Við komum þangað eiginlega á slaginu 19:00 en þá opnaði húsið.  Það var gígantísk röð þannig ég sagði við Fannar að fara af stað svo við kæmumst örugglega inn fyrir kl 20:00.  En þetta gekk í rauða rokinu og við vorum komin inn fyrr en varði.   Þegar inn var komið fórum við að leita að sætunum okkar, því við vorum í stúku, og það fyrir miðju á 6. bekk, það er ekki hægt að biðja um betri sæti Hlæjandi 
Ég skimaði eftir einhverjum frá Guðmundi bróður hans pabba, en sá engan og hugsaði ef þau koma þá hljótum við að sitja í sömu röð það er alltaf þannig, semsagt ef Guðmundur hafi pantað alla miðana saman.  Svo fóru hljómsveitirnar að hita upp, á fætur annarri en þær voru tvær, þær Múm og Rass.   Múm var svona Sykurmolarnir II, en Rass já þið vitið hvernig þeir eru, öskrandi út um allt um málefni líðandi stundar.   Samt áður en Rass byrjaði að spila sá ég Ingu frænku og ég veifaði og veifaði þangað til hún sá mig.  Hún settist á endann á bekknum með tveimur vinkonum sínum.  Og sagði mér svo að restin af fjölskyldunni væri á leiðinni, semsagt öll systkinin voru á staðnum plús Björk.   Svo sátum við öll í röð sem betur fer, leiðinlegt að vera þarna bara tvö saman.   Reyndar fengu Anna og Ásgeir tvo miða líka, en Anna systir komst ekki en Ásgeir notaði þá og vinur hans sem var ágætt. 

Þetta voru algjörlega geggjuðustu tónleikar sem ég hef farið á.  Reyndar var skotið svolítið fast og hart á Árna Johnsen, sem var ekki gott, því þarna var fullt af sjálfstæðismönnum sem eru á þinginu.  Allt í lagi kannski einu sinni sem grín en ekki allt kvöldið.  Einar Örn sagði það tæki allt kvöldið að útskýra málið með Árna fyrir útlendingunum.  Það var mjög mikið af útlendingum þarna, eins og vitað var fyrir.   Það var töluð enska við nánast alla íslendinga líka, haldandi bara að allir hefðu verið útlendingar.  Svo voru Sykurmolarnir klappaðir tvisvar sinnum upp og í bæði skiptin spiluðu þau, en svo enduðu tónleikarnir um 23:30.   Eftir það var svo haldið í eftirpartý sem var í hinum enda laugardagshallarinnar.   Þar var partý á tveimur hæðum, diskótek á efri og svo var bjór eins og þú gast í þig látið.  En Flugleiðir voru að bjóða frían bjór og það voru margir þarna sem áttu ekki að vera í þessu partýi bara út af því það var frír bjór.

Jæja ég held það sé nóg í bili....þangað til næst
munið að kvitta Brosandi

Same o, same o!!Tinna Ósk Auðunsdóttir

Hæ, hæ!


Það er kannski ekkert mikið að frétta af okkur.  Mamma og pabbi eru úti í Köben í ársátíðarferð hjá fyrirtækinu hans pabba.  Það er alltaf sami kuldinn hérna á fróni....núna er rétt tæpur mánuður í jólin, eruði ekki spennt.  Allavega er ég orðin frekar spennt, ég er svo mikið jólabarn.  Við Fannar ætlum reyndar að fá okkur aðeins stærra jólatré núna en í  fyrra.  En allavega veit ég það, að í Kaupmannahöfn er 15 stiga hiti og gott veður heldur en hérna á klakanum.
 
Vonandi kemst maður eitthvað erlendis næsta sumar....við Fannar eru allavega ákveðin í að fara eitthvað þó það sé bara helgarferð.  Reyndar á ég tvær sænskar vinkonur, þær Idu og Söru.  Sara er í Háskóla í Gautaborg held ég og Ida  er svona meira heimsflakkari, hún getur ekki verið kyrr í sama landinu lengi.  Ida er núna á Nýja Sjálandi og ætlar að búa þar í smá tíma og fá sér vinnu.  Ekki gæti ég þetta. 

Hef ekki meira í bili, þangað til næst

Snjór í dag, rigning á morgunn!Tinna Ósk Auðunsdóttir

Hafiði ekki tekið eftir því að það er aldrei hægt að treysta á veðurfarið núorðið.  Ég er nú ekki að tala um þegar er spáð stormi.  Heldur er ég að meina, þegar kemur snjór, og maður alveg váá...frábært snjór þið vitið..svo næsta dag er hann farinn.  Krakkarnir fara út á sleða og svona en þann næsta í sund því þá er orðið heitt semsagt rigning.  Aldrei hægt að treysta á snjóinn.

Mamma og pabbi komu í heimsókn í gærdag.  Við kíktum aðeins á ömmu og afa í Grafarvoginum, soldið langt síðan ég hef kíkt á þau.   Eftir það ákváðum við að fara á Mýrina, en hún var sýnd í Háskólabíói kl 15:00, þannig það var alveg upplagt að fara á myndina þar sem mamma og pabbi höfðu ekki séð hana.  Ég hef reyndar séð hana, fór með tengdamömmu og mági og Fannari á hana.  Mér finnst hún samt það góð að það er alveg í góðu að fara á hana tvisvar.  Svo kom Doddi vinur okkar í heimsókn í gærkvöldi. Langt síðan maður hefur hist, en hann er í Flugskólanum að læra einkaflugmanninn og reyndar er Valli vinur okkar þar líka.  Það verður spennandi þegar þeir ljúka pófinu Brosandi

Svo verða Sykurmolatónleikarnir næsta föstudag, og mikil spenna í gangi.  Við Fannar ætlum að skella okkur á tónleikana.  Þ.e. ef ég hef heilsuna í þetta.  Vonandi verður allt í lagi.  Mamma og pabbi verða erlendis þegar tónleikarnir verða og eru að vonum frekar vonsvikin að missa af þessum frábæra atburði. 

Það er hrikalega stutt í jólin og prófin.  Það eru tæpar 3 vikur eftir af skólanum og svo byrja prófin 1.des.  Þar sem ég er að vinna í 66° Norður hafa margar konur komið og keypt jólagjafirnar, fyrir börnin.   Enda er allt á hálfvirði, þannig hægt að gera góð kaup. 

Jæja, búið í bili, yfir og út
p.s. munið gestabókina Glottandi

Kominn snjór :-)Tinna Ósk Auðunsdóttir

Já, það er kominn snjór og mér finnst það bara fínt....ágætt að fá snjóinn, hann setur svip á jörðina.  Við fórum þarna austur um seinustu helgi, í smá boð til ömmu og afa á Hellu.  Við frændsystkinin áttum eftir að gefa ömmu og afa afmælisgjafirnar.  En við létum taka mynd af okkur, og gáfum við þeim svo myndina, eða afraksturinn.  Síðan ákváðum við að gefa þeim líka tvær kindur, af því að amma vill alltaf styðja flest öll málefni.  Þetta voru tvær kindur sem áttu að fara til Afríku.  Þannig að núna eru Guðni geit og Tóta geit úti í Afríku Brosandi frekar skondið já, og svipurinn á ömmu bar þess merki þegar hún opnaði skjalið.  Við lögðum af stað til Reykjavíkur um kvöldið og vorum komin í bæinn um hálf 8 leytið.  Það var nefnilega búið að spá vondu veðri aftur um kvöldið og við ákváðum því að fara snemma af stað. 

Fyrir austan voru fjögur af litlu frændsystkinum mínum, þ.e. öll í einu á sama tíma og það gerist mjög sjaldan nema um útilegu sé að ræða.   En þau voru Friðrik Gauti, Jóel Torfi, Salka og óskírð Gunnarsdóttir.  Það var að vonum gaman að sjá þau, en ég var í fyrsta skipti að sjá óskírðu Gunnarsdóttur.  En hún er alveg yndisleg, slétt og fín.  Ég get sagt ég eigi alveg frábæran hóp af litlum frændsystkinum.  En það er búið að hrúga þeim sl. 2 ár, semsagt alltaf fjögur á hverju ári.  Svo er Halla frænka að koma til Íslands í smá heimsókn, þannig það verður gaman að sjá litla skottið hennar, hann Úlf Hlæjandi 

Nú eru verkefnin farin að þéttast, hvað er það að skella fullt af verkefnum á mann þegar önnin er um það bil að klárast.  Ég var einmitt í skyndiprófi 2 í náttúrufræði 113 en það er jarðfræði.  Það er próflaus áfangi, en ég veit ekki hvernig mér gekk í prófinu sjálfu.  Það voru allavega sveittar 11 spurningar en við máttu sleppa einni af þessum spurningum.  Þetta var allt um jarðskjálfta og jarðvarma og svoleiðis skemmtilegheit. 

Jæja, nóg í bili....það er bara craazy að gera!!! Endilega skrifið í gestabókina og skiljið eftir ykkar spor.

Austur á Helluna....Tinna Ósk Auðunsdóttir

Ég var að vinna í dag.  En ég er að vinna núna í 66° Norður í Faxafeninu, reyndar á útsölumarkaðinum.  Og það var brjálað að gera, og við ekki margar að vinna þarna, eða við vorum þrjár talsins.  Svo var móður systir Fannars að skíra litla strákinn sinn þannig að ég komst ekki í hana, en Fannar fór bara sjálfur í staðinn.  Þannig eftir vinnu brunuðum við svo austur á Helluna, í brjálæðis veðri, roki og rigningu. Svo áður en við lögðum af stað þá fékk ég hrikalegt mígreniskast.  Ég var bara alveg frá og kastaði öllu upp sem ég átti til, og þetta var ekki gott enda sofnaði ég á leiðinni austur.  Ástæðan fyrir komu okkar austur var að mömmu fjölskylda ætlar að safnast saman heima hjá ömmu og afa...amma varð nefnilega 75 sl. september og við frændsystkin tókum okkur saman og létum smella einni mynd af þessum fríða hóp sem við nú erum.  Er stefnan því að gefa ömmu og afa myndina á morgunn í svokölluðu sunnudagskaffi.  Við fjölskyldumeðlimir ætlum að hlaða borðið af kræsingum.  Það verður gaman að koma saman, og sjá litlu Sölku og litla Friðrik Gauta. 

Það er samt voðalega gott að frétta af okkur.  Fannar er bara á fullu að vinna uppá Hellisheiðarvirkjun og ég í skólanum og að vinna.  En nú styttist ótrúlega mikið í jólin.....ekkert smá sko....allavega er mér farið að hlakka svolítið til.  En við Fannar ætlum bæði að vera á Helluni um jólin.....gott að vera heima í sveitinni

Jæja, nóg í bili en endilega kvittið í gestabókina og segið hvað ykkur finnst Hlæjandi




Halló, allir saman!Tinna Ósk Auðunsdóttir

Það er svosem ekki mikið að frétta.  En það var sögupróf í morgunn og ég er svo skítfallin.  Jaa, ég held það en spurningin er hvort það eigi við rök að styðjast.  Ég var nú að læra til kl hálf 2 í nótt og vaknaði svo aftur kl 6 í morgunn.  Allavega, þá hef ég ekki svosem miklar áhyggjur af þessu, af því að þetta próf gildir svo lítið.  En þessi söguáfangi er próflaus, þannig að verkefni og ástundun í tíma gildir meira.  Þannig að í þessum hluta eða hluta nr 2. þá giltu verkefnin miklu meira en prófið sjálft.  Þannig maður bíður bara og sér hvernig fer...Óákveðinn 

Já, svo er ég komin með nýja vinnu. Ég fékk vinnu í 66 ° Norður í Faxafeni, réttarasagt á útsölumarkaðinum.  Þetta er svosem ágætt og ég er með alveg prýðis góð laun.  Það er fínt að vera vinna innan um útivistarfötin aftur.  Endilega lítið við Glottandi

Jæja ný síða og nýtt bloggTinna Ósk Auðunsdóttir

Já, ég ákvað að koma með nýja bloggsíðu..það eru flest allir með þetta núna!
Bara smá innskot....Brosandi

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Tinna Ósk Auðunsdóttir
  • Kennitala: 240882-6049
  • Netfang: tinnamusic8@hotmail.com
  • Staður: Reykjavík
  • Heimilisfang: Kóngsbakki 2
  • Símanúmer: 5875955
  • Hjúskaparstaða: í sambúð
  • Um mig: Lyfjatæknanemi
  • Annað: Á litla sæta stelpu

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...