Fartalvan dáin!Tinna Ósk Auðunsdóttir
Já, litla sæta fartalvan mín dó bara. Það er búið að krukka í henni til að sjá hvað er að, en ekkert gerist. Í gær settu þeir svo allt nýtt í hana og Fannar fór og ætlaði að sækja hana. Þá var annar bragur á þessu. Það tók hana 10 mínútur að komast í gang, þannig að hún varð því áfram í viðgerð...eða við fáum nýja(sambærilega tölvu). Allavega ætla ég ekki að borga krónu fyrir þetta, því talvan er í ábyrgð og ekki orðin 1 árs gömul.Eftir þessa skírn þá er maður búin með kvótann sinn í kökuáti fram að jólum allavega. Við fengum afganga með okkur heim og það er búið að borða þetta nánast í hvern mat.
Jæja, meira er nú ekki að frétta! Aníta stækkar á hverjum degi og Fannar á fullu í vinnunni.
Hérna Linda nei ég fékk ekki e-mailið frá þér. Gsm númerið mitt er 866 6898 ef þú vilt bjalla í mig! netfangið mitt er tinnmusic8@hotmail.com
Skírn og fleiraTinna Ósk Auðunsdóttir
Þá er nafnið formlega komið á litlu skvísuna okkarSvo á sunnudeginum þá fórum við í 1 árs afmæli hjá Eddu Siv frænku. Það var líka gaman að kíkja í afmælið til hennar...hún var svo kát og skemmtileg
Í dag mánudag fórum við með litlu dömuna í vigtun og skoðun. Aníta Ósk mældist 57.7 cm og 5445 grömm. Litla músin okkar er að stækka og þyngjast all verulega þessa dagana. Ég sé hana nánast stækka í höndunum á mér. Aníta er 2ja mánaða í dag.
Kominn tími á smá blogg...Tinna Ósk Auðunsdóttir
Er ekki kominn tími til að blogga. Allavega er ég ekki orðin duglegasta manneskjan í þessum bransa. Reyndar er nú ekki mikið í fréttum. Fannar vinnur bara og vinnur og við Aníta erum heima. Um daginn keyptum við kerru fyrir bílstólinn og sem hún getur notað líka seinna. Þetta er frábært því núna get ég farið meira en ég gerði. Nú fer að líða að skírn og er allt á fullu í undirbúning fyrir það.Aníta Ósk stækkar með hverjum deginum sem líður. Finnst alltaf hún breytast á hverjum degi, alltaf nýtt barn. Talandi um börn þá er árið 2007 eitthvað frjósemis ár hjá gamla bekknum mínum úr grunnskóla. Því á árinu hafa fimm börn bæst í hópinn. Það er bara gaman af því, líka að það eru þrjú í ágúst
Haldiði að nýja fartölvan mín hafi hrunið um fyrir helgina. Mér finnst það frekar asnalegt þar sem þetta er varla eins árs gömul tölva. Vinur hans Fannars er kerfisfræðingur og er að vinna í því að reyna bjarga gögnunum okkar. Þannig eins og flestir sjá eru ekki komnar nýjar myndir inn á síðuna hjá Anítu. Ég er reyndar líka að bíða eftir skírninni þannig ég fái aðeins fleiri myndir í einu....og líka eftir tölvunni minni, vona bara þeir geti lagað hana
Mamma og pabbi koma heim í dag frá Amsterdam, og held þau komi með eitthvað fatakyns handa Anítu sætumús. Við þyrftum bara að fara kaupa stærri fatahirslu fyrir hana
Er þetta ekki gott í bili
p.s. endilega muna að kvitta á síðuna hjá Anítu Ósk, það er svo gaman að sjá hverjir eru að skoða.
Kominn októberTinna Ósk Auðunsdóttir
Er ekki komin tími á smá blogg... Ég er ekki neitt rosa dugleg að blogga þessa dagana. Svona er þetta víst þegar maður á barn, þá er allur tími hlaupinn frá manni. Við fórum með Anítu í vigtun og skoðun hjá barnalækni í gær, og hún kom alveg svaka flott út úr öllu. Hún er auðvitað lang flottust þessi skvísa. Svo ætlar Haddý frænka að koma og kíkja á okkur um helgina, það verður bara gaman.
Já, svo er komin október og mér finnst bara alveg að fara koma jól. Það verður svo gaman um jólin, þá verður Aníta orðin 4 mánaða gömul. Við verðum fyrir austan hjá mömmu og pabba og reikna með að pakkafjöldinn verði meiri en í fyrra. Nú verða jólin löng og góð þannig þetta verður fínt. Svo hlakkar maður bara til útileganna á næsta ári...þá verður Aníta svona 10 mánaða.
Samt er ekki mikið að frétta...Fannar vinnur bara, reyndar settu smá veikindi strik í reikninginn. Annars er ekki mikið að frétta af mér sjálfri annað, en að ég er bara heima með Anítu. Það getur samt orðið svo leiðinlegt að vera einn heima með hana, og komast ekkert út. Gæti alveg farið út með vagninn en samt ekki í svona mikilli rigningu eins og hefur verið undanfarið...þá er nú betra að vera inni og kannski bara undir sæng. Mig langar alveg að gera fullt af hlutum, en get það ekki...svo erum við líka bara með einn bíl og ég þekki engan hér í göngufæri. Mig langar líka orðið eitthvað svo hryllilega út, bara eina helgarferð til London eða eitthvað. Ég fór t.d. aldrei í neina útskriftarferð þannig mér finnst ég eiga þetta alveg skilið, líka þar sem ég varð 25 ára um daginn.
Komið gott í bili...þangað til næst
