Allt að gerastTinna Ósk Auðunsdóttir
Já, mótmælunum linnir ekki hjá þessum blessuðu vörubílsstjórum.
Við Aníta lendum alltaf í þessum mótmælum. Pabbi náði í okkur fyrir nokkru í bæinn og þá var verið að mótmæla á Ölfusbrúnni. Svo fórum við aftur með pabba á miðvikudeginum þegar var verið að mótmæla við olís á Norðlingaholtinu.
Svo í gær fórum við með Tótu frænku smá rúnt í Rvk og þá lentum við í enn einum mótmælunum. Við ætluðum í Kringluna en enduðum á að fara í Smáralind. .Aníta má helst ekki fara út úr húsi, þá lendum við alltaf í mótmælum.
Það er annars allt gott að frétta af okkur. Fannar er búinn með skólann, kláraði hann seinasta miðvikudag. Hann var hæstur með 9 í mörgu, ég er auðvitað stolt af honum. Núna er hann að vinna smá verk heima hjá móðursystur sinni. Svo byrjar hann aftur að vinna hjá Sverri eins og hann var vanur. Hann byrjar núna á mánudag.
Við Aníta fórum með pabba austur þarna á miðvikudeginum þegar var verið að mótmæla. Við skvísurnar ákváðum að hendast austur með pabba. Mamma og pabbi voru að fara til Amsterdam snemma á föstudagsmorgninum. Þau vildu svona kveðja okkur. Þeim fannst ekki leiðinlegt að hafa hana Anítu hjá sér. Við fórum í heimsókn til ömmu afa og hittum Kristínu afasystur og Óla. Þau koma svo aftur heim frá Amsterdam þann 2. maí. Þetta átti að vera afslöppunarferð, en breyttist fljótt í vinnuferð að hluta.
Helgin 18 - 20 aprílTinna Ósk Auðunsdóttir
Þessi helgi byrjaði á hótelsvítu á Hótel Sögu. Þar vorum við í 80 ára afmæli móðurafa Fannars. Við vorum fjórtán saman og var bara gaman. Fyrst var fordrykkur á svítunni sem afi og amma hans voru á. Síðan um kl: 19:00 fórum við upp á Grillið og fengum okkur þennan geggjaða mat. Það var bara surprise frá kokkunum og þvílíkt gott allt saman. Þetta var algjör veisla...takk fyrir mig
Allavega þá skemmtum við okkur vel. Við fórum heim um hálf ellefu leytið því mamma og pabbi voru að passa Anítu, og áttu eftir að keyra austur. Matarklúbbur daginn eftir og vildu vera fersk. Við keyrðum bróður hans Fannars á leið heim í Breiðholtið. Þegar við fórum, voru allir á leið á djammið...hehe...hefði verið ágætlega gaman að djamma með þessum hóp. Bíður bara betri tíma. Ég var semsagt driver, og Fannar fékk sér í glas. Aníta er ennþá á brjósti þannig að allt vín var bannað....kannski ekki beint bannað, þar sem ég reyki ekki né drekk vín þá er þetta ekki vont fyrir mig.
Laugardagurinn var tekinn með leti dauðans. Aníta vaknaði auðvitað eldsnemma, og við fórum seint að sofa. Ég vaknaði eins og ég hafi verið að djúsa og djamma til kl:06:00 um morgunn og líðan eftir því. Vildi helst sofa allan daginn, og nennti engu. Langaði helst í sóðalegan hamborgara í morgunmat og þareftir götunum. Fannar fékk sér í glas en var ekki timbraður, en VÁ ég var mun verri og drakk bara sprite zero
og keyrði heim. Ég þarf greinilega ekki vín. Manni varð heitt þegar maður gerði minnsta hlut. Samt náðum við að komast í Krónuna og kaupa inn fyrir heimilið. Ég bakaði bara heimagerða pizzu í gær og var hún bara æðislega góð. Við leigðum okkur síðan tvær dvd myndir í gær og hentum okkur upp í sófa.....algjörlega leti dauðans.
Sunnudagur er tekinn með stakri ró. Aníta vaknaði eldsnemma eins og vanalega, eða um 6 leytið í morgunn. Heldur snemmt á sunnudagsmorgni. Held við verðum bara róleg í dag. Kannski ég baki eitthvað....muffins eða þess háttar aldrei að vita. Svo smá spurning, skoðar einhver þessa síðu ? Mér finnst eins og enginn sé að kvitta né skoða hana. Allavega er þetta bara pæling.
Afmælisdinner & fleira!Tinna Ósk Auðunsdóttir
Í gær fórum við Fannar út að borða. Við vorum að halda upp á 3ja ára afmæli okkar. Ég verð nú samt að segja að ég hafi aldrei farið á jafn skrýtinn stað. Við fórum á Carpe Diem, það var rosa kósý stemning þegar við komum þar inn. Fengum sæti við lítið sætt borð, svo kom þjónninn með matseðilinn. VÁ! ég veit ekki hvar ég var, jakkafötin voru skítug, mátti sjá skítablettina allsstaðar. Tók líka eftir því að veitingastaðurinn var samtvinnaður við Fosshótel sem er þarna niðri í bæ. Þá kom soldið snobb upp í minni ...alveg ,,guð ég vissi ekki að þetta væri Hótel" Ég lét mig nú þetta ekki á mig fá, nema ég sá að ofninn var með einhverjum slettum semsagt skítugur. Við ákváðum bara að láta okkur líða vel. Við vorum þarna saman til að hafa rómó og næs bara tvö. Við sátum þarna ein til svona rúmlega 8 um kvöldið, en þá opnuðust dyrnar og inn komu ein hjón...mér til mikillar ánægju annars hefðum við Fannar verið ein þarna allt borðhaldið. Svo undir lokinn var kominn einn útlendingur.
Maturinn var samt mjög góður, ekki hægt að kvarta yfir því. Þjónninn okkar var samt mjög veikur að ég held. Haltraði, var glær í augunum og átti erfitt með að tala, vegna hóstakasts.
Mamma og pabbi komu til okkar seinnipartinn í gær og pössuðu Anítu á meðan. Hún var rosa stillt og góð hjá ömmu sinni og afa. Vonandi verður hún jafn góð næstu helgi.
Núna fer lokaspretturinn hjá Fannari að renna upp. Hann er búinn með lokaverkefnið sitt, langfyrstur þannig núna fær hann að laga verkefnin og stilla þeim upp fyrir sýninguna. Hann gerði nokkur verkefni á önninni. Svo er ég að pæla að fara í skóla núna í haust. Ég var að pæla að fara í Heilbrigðisskólann í Fjölbraut Við Ármúla. Þar ætla ég að læra annaðhvort Tanntækni eða Lyfjatækni. Ég er svona manneskja sem vill bara ganga að þessu greiðu. Vita hvaða áfanga ég þarf að taka og svoleiðis. Hve margar einingar ég þarf að ljúka, ég er nú búin með stúdentinn þannig ég get byrjað bara á brautinni sjálfri. Fer samt eftir hvort ég fari í dagsskóla eða fjarnám eftir því hvort Aníta fær leikskólapláss. Háskólinn er ekki fyrir alla, en þetta nám er á einskonar háskólastigi. Fannar verður að vinna núna alveg fram að jólum, svo fer hann í skóla á næstu vorönn. Þannig kannski getum við útskrifast saman, þegar hann er búinn með sveinsprófið.
Mikið að gerastTinna Ósk Auðunsdóttir
Það verður nóg að gera hjá okkur um helgina og þá næstu. Núna á laugardagskvöldinu ætlum við skötuhjúin fínt út að borða, í tilefni af 3ja ára sambandsafmæli okkars. Mamma og pabbi ætla og passa litlu prinsessuna sína, á meðan við höfum það notalegt á Carpe Diem
Ég reikna nú ekki með því að við förum eitthvað annað á eftir....það væri þá bara bíó eða eitthvað svoleiðis. Ég held frekar við njótum þess að vera bara tvö og reynum að njóta matarins.
Svo þann 18. apríl verður afmælisfagnaður í tilefni af 80 ára afmælis afa Fannars. Dætur hans ætla að bjóða honum og öllum sem eru orðnir fullorðnir í veglega afmælisveislu á Grillinu á Hótel Sögu. Mamma og pabbi ætla að koma aftur og passa litlu dúlluna sína. Nú þarf bara að finna eitthvað flott dress á mann til að fara út að borða.
Annars er svona mest lítið að frétta. Bara það sama, Aníta stækkar hrikalega hratt þessa dagana og ferðast út um allt. Er mikið í göngugrindinni sinni og farin að tæta allt og líka farin að vera meira á gólfinu, til að byrja skríða. Fannar er á seinasta hlunninu núna í skólanum. Hann verður búinn þann 23. apríl held ég. Svo fer hann að vinna. Ég hef ekki ennþá ákveðið hvað mig langar til að gera varðandi skóla eða annað, en það hlýtur að koma einhvern tímann.
Ég minni fólk enn og aftur að kvitta á síðuna hjá Anítu....það eru svo margir sem skoða en allt of fáir sem kvitta og HANANÚ!!!
Löngu kominn tími á blogg..Tinna Ósk Auðunsdóttir
Hvað segir fólkið um nýtt blogg ? Ég er allavega orðin leið að seinasta færsla er það síðasta sem gert var á þessari síðu. Nú eru páskarnir búnir, og margir hafa víst borðað yfir sig af veislumat og páskaeggjum. Við borðuðum reyndar ekkert páskaegg. Kannski gerum við það á næsta ári þegar Aníta verður orðin eldri. Við fórum austur til mömmu og pabba um páskanna, og tókum barnavagninn með. Fórum líka í göngutúr til ömmu og afa í góðu en þó köldu veðri á föstudeginum langa.Á laugardeginum fengum við gesti í heimsókn....sem var mjög gaman. Svo á annan í páskum fórum við aftur í bæinn....við höfðum keypt nýjan sófa fyrir páska og vorum við glöð að komast aftur heim og sitja í honum
Það er reyndar allt fínt að frétta af okkur hérna í Breiðholtinu. Nóg að gerast í ránum hérna...maður býr víst í gettóinu. Nú fer að styttast í útilegutímann...mig hlakkar svo til. Ég get vart beðið að komast út í náttúruna og sitja úti og spjalla og leika við Anítu í grasinu. Um daginn fann ég grilllykt og sá að einhver var að grilla og ég missti mig alveg mig langaði svo í grillmat.
Svo þann 9. apríl erum við Fannar búin að vera saman í heil 3 ár
