Skólinn fer að byrjaTinna Ósk Auðunsdóttir
Skólinn byrjar á morgunn. Í gær þurfti ég að fara og láta breyta stundatöflunni minni. Ég þurfti að taka út tvo áfanga sem ég get ekki verið í vegna Tenerife ferðar fjölskyldunnar. Ég bætti tveimur áföngum inn í staðinn og er því í 16 einingum. Ég get tekið einn áfanga í fjarnámi þá verð ég í 18 einingum. Spurning hvað ég geri, en ég nenni ekki að vera allt of lengi að þessu. Samt málið er að ég er búin með stúdentinn þannig einungis sérhæfðir áfangar brautarinnar eru í boði og eru þeir ekki alltaf kenndir, sumir á vor og aðrir á haustönn. Þannig ég verð svona að velja það sem er í boði hverju sinni. Ég er reyndar bara kl:8:10 á morgnanna á mánudögum og þriðjudögum en byrja kl:10:15 á miðvikudögum og fimmtudögum og svo kl:9:05 á föstudögum. Ég er líka alltaf búinn 14:20 þannig ég hef alveg tíma til að sækja Anítu sem er fínt. Svo sótti ég um bílastæði við skólann en það kostar víst 8000 kr. Það er verið að byggja við skólann og eru einungis 100 bílastæði í boði. Ég sendi inn umsókn og ástæður þess að ég þyrfti bílastæði. Krossa fingur að ég fái blessaða bílastæðið. Þessa önn þarf ég einungis að kaupa tvær - þrjár bækur annað er afhent af kennara í hefti. Svo getum við lagt í stæði við Laugardalshöll en ég nenni ekki að leggja þar.
Aníta byrjaði aftur hjá dagmömmu á mánudaginn og varð bara ánægð að byrja aftur og leika við krakkana. Hún er orðin svo mikill prakkari. Hún stríðir víst mikið krökkunum og þau horfa eftir henni þegar hún fer heim. Litli stríðnispúkinn okkar. Dagmömmunni fannst Aníta vera búin að stækka og þroskast yfir hátíðarnar. Hún hefur tekið einhvern vaxtakipp um jólin og er mun þroskaðri í andlitinu. Sumir sem sjá Anítu í fyrsta skipti segja hana vera 2 ára, hún sé svo þroskuð. Hún er farin að segja búba = súpa, dida = sitja, dadth = takk
Tenerife flugið er alltaf að breytast. Núna eigum við að lenda kl:05:00 að nóttu þegar við komum heim. Vona að það gangi vel, sem og flugið út. Við þurfum líklegast að millilenda í London á leið út, spurning hvað Aníta segir við því. Vona bara að hún geti sofið eitthvað á leiðinni. Hún á eflaust eftir að vera hrikalega forvitin og pirruð út af svefnleysi. Það var í lagi að fara í þessa Tenerife ferð hvað skólann varðar. Ég verð hins vegar á fullu að skila verkefnum og svoleiðis. Fartalvan fer með mér út, svo ég geti skilað af mér verkefnum og svona. Ætli maður taki ekki eitthvað af skólalesefni með sér í handfarangur til að stytta manni stundir.
Svo hringdum við til að tékka hvernig gengi með leikskólapláss fyrir Anítu. Hún kemst ekki inn fyrr en næsta vor. Þetta fer víst eftir kennitölu og hversu margir eru á undan henni í röðinni. Fannar lét í sér heyra í gær. Fannst skrýtið að ekki kæmust fleiri börn inn þegar leikskólarnir eru að fyllast af fólki. Hún er þó hjá dagmömmu og með krökkum, en hún er að verða eins og hálfs árs í næsta mánuði. Þau sögðu hún kæmist inn tveggja ára, en það er samt ekki alveg gilt. Því það eru jú krakkar á undan henni í röðinni sem eiga afmæli fyrr og svona kjaftæði. Svo ef eldra barn en Aníta flytur í bakkana þá fer það undan henni á leikskóla af því það er eldra.
